Smá samanburður á Snædís og foreldrunum frá svipuðum aldri.
Það er ekki langt síðan að Snædís fór að fara um allt á maganum svo á rassinum og nú stendur hún upp við allt og gengur með fram og svo reynir hún að klifra upp á allt með misjöfnum árangri eins og sjá má í videoinu hér fyrir ofan
Hún keyrir líka um allt hús á bílnum sínum eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan
Hér eru fleiri myndir frá því núna í Apríl
Við Snædís fórum í gær í heimsókn til Jóhönnu systir Ívars og hittum þar Svanhildi bróðurdóttir Ívars og fjölskyldu hennar. Franklín eldaði handa okkur flotta hamborgara og Ilmur Eir bakaði handa okkur súkkulaðiköku sem var algert æði í eftirrétt.
Á meðan við hittum frændfólk Ívars, var hann á Reykjavíkurmótinu í pílukasti og gerði sér lítið fyrir og vann mótið
Þvílíkt flottur árangur og greinilegt að það eru að skila sér píluæfingarnar í bílskúrnum á meðan Snædís sefur á daginn.
Snædís varð 11 mánaða í gær, hún er dugleg að borða og fer um allt á rassinum í staðinn fyrir að skríða, hún er líka orðin mjög dugleg að labba með og reynir að standa upp við flesta hluti. Hún er dugleg að borða matinn sinn. Hún er farin að nota koppinn sinn reglulega og svo er hún farin að segja nokkur orð eins og “mama”, “pabba”, “datt” og “namminamm”.
Um páskana vorum við að mestu heima en fórum eina nótt austur í Vík í Mýrdal og heimsóttum Jón Gunnar pabba Ívar
Bumbubúinn virðist svo dafna vel og lætur finna fyrir sér með spörkum jafnt dag sem nótt.
Smelltu á myndina til að skoða myndband af Snædísi skríða.
Snædís kann ekki að skríða á hnjánum ennþá en hún fer um allt með því að draga sig áfram á höndunum á maganum. Nú er aðalstuðið að reyna að ná í beinin hans Garps og í vatnsdallinn hans og sulla þar. Hún stoppar ekki allan daginn og er að vonum alveg búin á því á kvöldin þegar hún fer að sofa.
Ég var að bæta inn fleiri myndum fyrir mars í myndalbúmið











Nýjustu comment