
Ívar á endasprettinum
Við hlupum bæði 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn og það var mjög gaman. Fullt af fólki sem við þekkjum var að hlaupa og að sjálfsögðu fullt af vinnufélögum mínum. Hrönn vinkona, Hafdís og Gunni svo einhverjir séu nefndir.
Að öðru leyti var þetta róleg helgi hjá okkur þar sem potturinn var mikið notaður. En Ívar keyrði svo taxa á Menningarnótt.
Við Garpur fórum í skemmtilega göngu á Helgafell áðan með Ólöfu, Matthildi og Hafdísi. Við fengum frábært veður eins og myndin ber með sér
Ólöf var að fara í sína fyrstu fjallgöngu og Matthildur 8 ára stóð sig eins og hetja og var fyrst á toppinn !!

Göngugarparnir við Gígjökullón
Fríið er búið og vinnan tekin við en það þýðir samt ekkert volæði eða þunglyndi hér á bæ.
Ég, Hafdís, Gunni og Kolla gengum Fimmvörðuháls á laugardaginn sem er gönguleiðin frá Skógum yfir í Þórsmörk, það var mjög gaman að ganga þetta aftur eftir 2ja ára hlé og sérstaklega að fá að skoða nýja hraunið og tvö ný fjöll og gíga þar sem áður var alger auðn á leiðinni.
Við fengum ágætasta veður, þrátt fyrir að hafa ekki glampandi sól var mjög hlýtt og stuttbuxur og hlýrabolur var málið nánast alla leið. Við fórum á 2 bílum og skildum annan eftir við Seljalandsfoss, brunuðum á hinum austur að Skógum þar sem við hófum gönguna kl. 8 um morguninn. Askan jókst eftir því sem ofar var komin með Skógaránni og jökulinn á Fimmvörðuhálsi var alveg svartur eins og reyndar Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull líka. Það var magnað að ganga þarna eftir heitum jarðveginum og nánast á gígbarminum sem gaus úr fyrir nokkrum mánuðum. Heljarkambur var bara grín miðað við fyrri reynslu að mér fannst, svo ég hef greinilega sjóast í lofthræðslu í öllum þessum göngum. Kattarhryggirnir voru á sínum stað grænir og gróðri vaxnir og þeir höfðu einnig gerst árennilegri á þessum tvemur árum
Gangan hefur aðeins lengst þar sem þarf að taka smá krók vegna nýja hraunsins og er nú 24,2 km í stað 22,7 km. samkvæmt garmin tækinu mínu. Við vorum 8 tíma á leiðinni niður í Bása sem passaði flott til þess að taka rútuna út úr mörkinni að Seljalandsfossi í bílinn. Gallerý pizza var svo að sjálfsögðu næsti áfangastaður eftir að við höfðum sótt hinn bílinn að Skógum, þar sem við rendum niður ljómandi góðum pizzum.
Ívar og Garpur fóru ekki með, Ívar var að taxast og ég treysti Garpi ekki í svona langa göngu í ösku og hrauni á köflum, en þeir fóru í Heiðmörkina og hlupu þar 13 km hring.
Í gær fórum við Garpur svo og skokkuðum 10 km Reykjavíkurmarathonhringinn með Hrönn vinkonu. En hlaupið er á næstu helgi og undirbúningur í fullum gangi fyrir það




Við áttum rólegann dag heima við í dag og fórum aðeins á rúntinn og í ísbúð þar sem Garpur fékk smá ís og það þótti honum nú ekki slæmt

Fjölskyldan á leiðinni að Hengifossi
Við erum komin heim úr sumarfríinu okkar. Áttum saman 10 daga og eyddum þeim í að ferðast um landið.
Við byrjuðum ferðina á að fara í Ásbyrgi og taka þátt í Jökulsárhlaupinu á síðustu helgi með einnar nætur viðkomu á Blönduósi.
Hlaupið gekk vel, við hlupum bæði frá Hljóðaklettum og yfir í Ásbyrgi (13,2 km) og þetta var fyrsta utanvegahlaupið mitt. Eftir hlaupið keyrðum við austur á Egilsstaði til Þorbjargar móðursystur Ívars og dvöldum þar þar til í gær.
Það er nóg hægt að skoða á austurlandi. Við gengum á Snæfell í blíðskaparveðri og skoðuðum Fardagafoss, Litlanesfoss og Hengifoss. Fórum á Seyðisfjörð og skoðuðum lífið þegar Norræna er við höfn og fórum út á Borgarfjörð Eystri og gengum í Stóruurð sem eru risastórir steinar sem hafa einhvertímann fallið úr Dyrfjöllunum. Við gengum líka út í Stapavík sem eru lítil falleg vík sem einu sinni var notuð til uppskipunar og er út við Héraðssand.
Við enduðum svo dvölina á að taka þátt í Barðsneshlaupinu í Norðfirði, ég fór hálft hlaup 13 km (Hellisfjarðarhlaup) og bætti tímann minn frá því í Jökulsárhlaupinu. Ívar hljóp alla leið úr Barðsnesi eða 27 km og bætti tímann sinn síðan hann hljóp þetta árið 2007.
Dvölin á Egilsstöðum var því mjög markverð og frábær í alla staði enda var stjanað við okkur hjá fólkinu hans Ívars.
Við ókum svo af stað heim í gær og ætluðum að gista í Skaftafelli í nótt en það var ekkert sérlega bjart veður fyrr en komið var vestur fyrir Kirkjubæjarklaustur svo við ákváðum því bara að keyra alla leiðina heim en með viðkomu í humarveislu hjá Jón Gunnari í Vík.








Fullt af fleiri myndum komnar í albúmið
Nýjustu comment